Guð er kona

[Verse 1:]
Lítil stelpa sagði við mig: Sjáðu skýin þarna
Sjáðu þetta þykka hvíta, þar er hópur barna
Þegar ég verð gömul og geng bogin svona
Mun Guð á himnum taka mig og Guð, hún er kona

[Verse 2:]
Gamall maður sagði við mig: Sumarið er búið
Hjartað mitt er ansi þreytt, orðið frekar lúið
Að ég deyi í svefni, vinur það ég vona
Og vakni upp og sjái að Guð minn er kona

[Verse 3:]
Ástfangna konan sagði: Sjáðu hann er fagur
Ég sef við brjóst hans uns að nýju rís dagur
Ég óska mér að dagar okkar verði alltaf svona
Og eitt máttu vita, ég veit að Guð er kona

[Verse 4:]
Lítil stelpa sagði við mig: Sjáðu skýin þarna
Sjáðu þetta þykka hvíta, þar er hópur barna
Þegar ég verð gömul og geng bogin svona
Mun Guð á himnum taka mig og Guð, hún er kona

Trivia about the song Guð er kona by Bubbi Morthens

When was the song “Guð er kona” released by Bubbi Morthens?
The song Guð er kona was released in 2002, on the album “Sól að morgni”.

Most popular songs of Bubbi Morthens

Other artists of