Kona

Kári Stefánsson, Þorsteinn Einarsson

​​Bærðist ekkert utan hjarta
​einn á gangi og nóttin bjarta
​bjó þig til
​nætur sumars, sumar nætur
​suma okkar heppna lætur​
​finna ást sem aldrei dvínar
​ætíð finnur rætur sínar
​þótt árin líði og öllu breyti
​utan þér

​þú ert ennþá ilmur blóma
​ennþá sveipuð skærum ljóma
​seiðandi bjartrar sumarnætur
​sem mér ávallt finnast lætur
​að friðurinn sé hér
​í mínu gamla höfði og hjarta
​hrekur burtu rökkrið svarta
​kveikir ljós

​Bærðist ekkert utan hjarta
​einn á gangi og nóttin bjarta
​bjó þig til
​eins og blóm í haustsins haga
​hátíð gerir alla daga
​það er ekkert eins og þú
​ástin mín fagra þá og nú

Trivia about the song Kona by Hjálmar

Who composed the song “Kona” by Hjálmar?
The song “Kona” by Hjálmar was composed by Kári Stefánsson, Þorsteinn Einarsson.

Most popular songs of Hjálmar

Other artists of Reggae music