Á Tjörninni

Í tjörninni alls konar óþverri lifir
Og endurnar líða nauð
Því herskari máfa hellist yfir
Hjartagott fólk með brauð

Seint verður þessum öndum auðið
Að eignast stykki feitt
Þær guggna svo fljótt á að gogga í brauðið
Og geta ekki barist neitt

En máfurinn verður montinn og digur
Og mikill á allan veg
Þetta er alveg sanngjarn sigur
Og samkeppnin heiðarleg

Lífið er erfitt litlu peði
Og leikbrögð þess einskis nýt
Endur sem bera ekki grimmd í geði
Þær geta víst étið skít

Trivia about the song Á Tjörninni by Hjálmar

When was the song “Á Tjörninni” released by Hjálmar?
The song Á Tjörninni was released in 2011, on the album “Órar”.

Most popular songs of Hjálmar

Other artists of Reggae music