Vísa Úr Álftamýri

Þú sem átt engan að
Ekki öruggan stað
Eða sæng til að hlýja þér í

Þú sem misst hefur allt
Út í náttmyrkrið kalt
Ertu borinn og vistaður því

Ef þú átt engan aur
Ert þú örlítill maur
Luktum augum vors yfirvalds í

Því að svefndrukkin þjóð
Fagnar sjálfstæði, óð
Og allt siðferði brátt fyrir bí

Þetta myrkranna afl
Mannar hættulegt tafl
Og þá mennirnir falla eins og strá

Þar sem allt snýst um að
Setja tölur á blað
Og þá sitja menn fúlgunum á

Af því sem þú hefur
Er það sem þú gefur
Nákvæmlega það sem þú munt fá

Engin spurning um trú
Þetta er lögmál og þú
Getur alls ekki komist því hjá

Trivia about the song Vísa Úr Álftamýri by Hjálmar

When was the song “Vísa Úr Álftamýri” released by Hjálmar?
The song Vísa Úr Álftamýri was released in 2007, on the album “Ferðasót”.

Most popular songs of Hjálmar

Other artists of Reggae music